Elísabet

Elísabet

 

Fréttir

5 ára afmæli Rbst. nr. 14, Elísabetar 29. apríl 2011


5 ára afmæli Rbst. nr. 14, Elísabetar 29.apríl 2011

Starf stúkunnar hefur verið metnaðarfullt og farsælt þessi fimm ár sem liðin eru síðan stofnfélagar hennar stóðu í þeim sporum að vinna að því, að umgjörð og starf stúkunnar mætti þjóna sem best þeim tilgangi sem hugsjónir Oddfellowreglunnar eru byggðar á. Eitt af markmiðum okkar við stofnun nýrrar stúku var að stúkan væri öflug stúka nýrra tíma. Stofnfélagar stúkunnar voru 38 sstr. og 1. br. en móðurstúka Elísabetar er Rbst. nr. 4, Sigríður. Í dag erum við 68 sstr. og 1. Br.

Lesa meira

Söluvara Rbst. nr. 14, Elísabetar.


Eru Oddfellow-gögnin þín varðveitt á tryggum stað?
Rbst. nr. 14, Elísabet er með í sölu öskju fyrir umslag með gögnum Reglusystkina, sem ber að varðveita á tryggum stað.
Lesa meira

Velkomin á nýja heimasíðu Elísabetar.

Á vorfundi stúkunnar 4. maí 2010 var samþykkt að heimasíða stúkunnar væri uppfærð í nýju útliti.  Í framhaldinu var gerður þjónustusamningur við Stefnu ehf. sem felur í sér aðstoð fyrirtækisins við gerð síðunnar og hýsingu.  Innri vefur síðunnar er að efni til byggður upp á þeim efnisflokkum sem hafa verið á læstri síðu heimasíðu stúkunnar undanfarin ár. Lesa meira

Mynd augnabliksins

Auglýsingar

Heimasíða stórstúkunnar
Oddfellow Félagatal - gagnagrunnur

Spakmæli vikunnar

  • Vináttan veitir gleði og styrk. Að lifa í kærleika er mesta hamingja sem við fáum notið.

     

  • Án tengsla við samfélag manna getur maðurinn ekki lifað.                                           

     

  • Ef við erum friðlaus, er það af því að við höfum gleymt að við tilheyrum hvert öðru.

     

  • Ást einnar veru til annarrar er í raun aðeins það að tvær einmana verur nálgist, skilji, verndi og gleðji hvor aðra.

     

  • Margir  gera sér ekki grein fyrir þeirri miklu gleði og ánægju sem fylgir því að gefa af sér sjálfum, tíma sínum og auði.  Láttu reyna á það og upplifðu endurgjaldið.

     

  • Ef við gerum aldrei mistök þá lærum við ekki  að meta velgengnina.

     

  • Áttir þú erfiðan dag ? Snúðu spjaldinu við og hughreystu einhvern annan sem virðist eiga eins erfitt og þú.

     

  • Gefðu gleðinnar vegna, meðvitaður um að þú búir yfir hæfileikum, getu og vilja til að hjálpa öðrum.

     

  • Ekkert er mikilvægara börnum okkar en fallega sögð orð. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

     

  • Grundvöllur vináttunnar er að sælla er að gefa en þiggja.

     

  • Ekkert er jafn varðmætt og þessi dagur.

     

  • Sá sem heldur að ekki sé hægt að breyta fortíðinni hefur ekki enn skrifað endurminningar sínar.

     

  • Leyndardómur þess að sigra er þetta tvennt - að hætta aldrei og gefast aldrei upp.

     

  • Ekkert í heiminum á í eins ríkum mæli skilið langa fangavist sem tungan.

     

  • Með því að hugsa vel um líkamann sýnum við Skapara okkar, sem gaf okkur lífið, virðingu.

     

  • Öll höfum við eitthvað sérstakt fram að færa - leyfum öðrum að njóta þess.

     

  • Láttu ekki mistök dagsins í dag hindra þig í að reyna aftur á morgun.

     

  • Við náum okkar æðsta takmarki með því að gefa af okkur sjálfum - þannig hugsum við út fyrir okkur sjálf og færum öðrum kærleika.

     

  • Fátt er meira hvetjandi til dugnaðar og hollustu en traust.

     

  • Börnin eru eins og vatnið - þau fúlna ef þau eru bæld niður, þau fara offari ef þeim er ekki veitt aðhald, en sé þeim leiðbeint eru þau hvers manns hugljúfi.

     

  • Jafnvel rangar ákvarðanir verða til góðs ef þær hjálpa okkur að nota meiri visku í framtíðinni.

     

  • Það gæti verið álitið gamaldags að standa upp fyrir einhverjum í strætó en mundu að góðvild og tillitssemi fara aldrei úr tísku.

     

  • Án réttra markmiða áttu ekki eftir að lifa lánsömu lífi, sama hversu mikla peninga þú þénar eða hversu þekktur þú ert.

     

  • Trúin er besta gjöfin sem hægt er að gefa fólki sem skortir sjálfstraust. Sýndu þeim að þú hafir trú á þeim og þeir gætu komið öllum á óvart.

     

  • Kærleikurinn virkar á börnin á sama hátt og sólin á blómin. Hann virkar einnig á fullorðna.

     

  • Erfiðustu verkin verða mun auðveldari viðureignar þegar þeim er skipt niður í nokkur smærri verkefni.

     

  • Þeim sem hugsar einungis um eigin hag hættir til að vera þröngsýnn og smásmugulegur. Við öðlumst virðingu með því að láta okkur annt um aðra með bæn, gjöfum og hvers konar aðstoð.

     

  • Ertu að flýta þér, áhyggjufullur og hikandi? Þá dregur hlýlegt faðmlag og vingjarnlegt tal úr álaginu.

     

  • Leiðin til farsældar hefst í hjarta þér. Temdu þér rétt gidli og forgangsröðun og þú ert þegar komin hálfa leið.

     

  • Vandi dagsins í dag verður léttvægari ef við hlökkum til morgundagsins.

     

  • Þakklæti er fullkomin gjöf í öllum kringumstæðum.

     

  • Hvort sem þú ert stórstjarna eða liðsmaður skaltu deilda sviðsljósinu með öðrum og þú munt alltaf hafa einhvern til að deila með þér minningunum.

     

  • Hættu ekki við hálfnaða hugsun - hugsaðu málið til hlítar.

     

  • Nánast öll þau þægindi, sem þú nýtur í dag, eru ávöxtur erfiðis, fórna og tára einhvers annars. Himininn einn veit hvaða blessanir hljótast af þínum verkum.

     

  • Guð gefur okkur svigrúm og frjálst val, hið sama gerir góður yfirmaður eftir því sem honum er unnt.

     

  • Gefðu þig að því að gleðja aðra og fyrr en varir hellist gleðin yfir þig. Gleymdu þínum eigin vandamálum með því að gera öðrum gott.

     

  • Það sem ræður örlögum þínum er ekki hvað þér býðst,  heldur hvað þú velur.

     

  • Stærstu sigrarnir eru þeir sem þú deilir með öðrum.

     

  • Líf þitt endurnýjast daglega. Einsettu þér að láta gott af þér leiða. Líf þitt verður innihaldríkara ef þú gefur þér tíma til að hjálpa fólki og leitar að því jákvæða í fari þess.

     

  • Öllum verða á mistök. Gefðu gaum að þínum eigin en líttu framhjá mistökum annarra.

     

  • Láttu ekki vandamál lífsins draga úr þér kraft - láttu frekar ánægju lífsins gagntaka þig.

     

  • Ég þarf að muna. ..að gefa mér tíma til að hvetja aðra.. að þakka Guði daglega fyrir vináttu og ástvini.. að taka engu sem sjálfsöðum hlut.

     

  • Það þarf vitran mann til að viðurkenna að hugmynd annars sé betri en hans eigin.

     

  • Góðir leiðtogar skipa ekki fyrir eða eru ýtnir eða heimtufrekir - þeir stjórna, leiðbeina og hvetja. 

     

  • Hatur,  reiði og langrækni gerir lífið leiðinlegt en kærleikur, fyrirgefning og miskunn gerir það aftur á móti skemmtilegt.

     

  • Það borgar sig að hlusta á aðra. Sérhver einstaklingur veit eitthvað sem þú veist ekki.

     

  • Hugsaðu til himins, hafðu fæturna á jörðinni og hjartað á réttum stað.

     

  • Lífið er eins og lækur. Bugðurnar á leiðinni eru ætlaðar okkur til leiðbeiningar en ekki til að stöðva okkur.

     

  • Glaðværðin á rætur í hjarta þínu og breiðist þaðan út.

     

  • Ekki líta á áföll sem tap, heldur sem tækifæri - auðar landspildur til að byggja á nýja drauma.

     

  • Ávarpaðu fólk með nafni. Það hljómar eins og tónlist í eyrum þess og sýnir að þér þykir vænt um það.

     

  • Betra er að leita að lausn vandans frekar en að kenna einhverjum um hann.

     

  • Þú getur einungis unnið einn sigur fyrir sjálfan þig, en þú getur átt þátt í mörgum sigrum með hvatningu og innblæstri öðrum til handa.

     

  • Það eru takmörk fyrir því hve miklu við getum afkastað - því skulum við einbeita okkur að því sem máli skiptir.

     

  • Ánægður maður nýtur útsýnisins þótt hann verði að fara krókaleiðir.

     

  • Mikið af því sem þú sérð fer eftir því hverju þú leitar að. Þú sérð það sem þú vilt sjá.

     

  • Viljir þú lifa hamingjuríku lífi skaltu byrja hvern dag á að minnast einhvers sem þú ert þakklátur fyrir.

     

  • Láttu kærleikann knýja þig áfram og vera hreyfiaflið á bak við allt sem þú gerir.

     

  • Lífið er stórkostleg gjöf. Vritu það, njóttu þess og gerðu sem mest úr því með því að nýta tímann í það sem virkilega kemur að gagni.

     

  • Vera má að kærleiksverk og vinarþel breyti engu um rás sögunnar en breyti það lífi fólks til hins betra skiptir það miklu máli.

     

  • Hrós hvetur meira en hagnaðarvon. Ánægt fólk er kraftmikið fólk.

     

  • Allar breytingar eru erfiðar og geta verið kostnaðarsamar en séu þær til bóta eru þær dýrmætar þegar til lengdar lætur. 

     

  • Góð samskipti byrja með vinsemd og kærleika.

     

  • Sá sem viðurkennir mistök sín og leitast við að leiðrétta þau getur sagt með sanni að hann sé vitrari í dag en í gær.

     

  • Besta leiðin til að leiðrétta ágreining er ekki fólgin í því hver hafi rétt fyrir sér, heldur hvað sé rétt.

     

  • Foreldrar þurfa að vera hvort tveggja í senn:  Seinir til reiði og fúsir til að elska og fyrirgefa. 

     

  • Fortíðin er liðin, framtíðin ókomin og tilheyrir þér ekki enn sem komið er. Núna er eini tíminn sem þú átt. Nýttu hann vel.

     

  • Ekkert af því sem hjartað gefur frá sér er tapað - það er geymt í hjörtum annarra.

     

  • Með miklum aga og mikilli þjálfun nær íþróttafólk æðsta takmarki sínu. Í gegnum mótlæti getum við aðeins fundið innri styrk og andlegt þrek.

     

  • Sönn stórmenni líta ekki stórt á  sig, heldur láta aðra finnast þeir skipta máli.

     

  • Börn verða sjaldan eins og við væntum - en það urðum við ekki heldur.

     

  • Geislandi bros leiðir af sér sanna gleði sem breiðist út til annarra.

     

  • Bíddu ekki eftir að vináttan komi til þín. Farðu til hennar.

     

  • Lífið er eins og rós - og engin rós er án þyrna.

     

  • Ef við gerum aldrei mistök þá lærum við ekki  að meta velgengnina.

     

  • Vináttan byggist á því að gleyma því sem maður hefur gefið, og muna hvað maður hefur fengið.        

     

  •  

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf